...þeim skjátlaðist!

Frímúrarinn með FLokksglottiðAnders Behring Breivik, innvígður og innmúraður liðsmaður systurFLokks sjáLfstæðisFLokksins íslenska í Noregi, baðar sig í sviðsljósi fjölmiðla í frímúrarafötunum með FLokksglottið.

Norska dómskerfið virðist ekki hafa hugmynd um hvernig á að hantera siðlausan fjöldamorðingja. Réttarhöldin eru skrípaleikur - farsi, og norskir sálfræðingar rífast um hvort sjálfstæði marxistamorðinginn sé sakhæfur eða ekki.

Óvenju hljótt hefur verið um himinhrópandi viðvaningshátt og vanhæfni norsku lögreglunnar í tengslum við þetta mál."Vinirnir höfðu hringt í norsku neyðarlínuna, 999, og tilkynnt um skotárás í eynni en lögreglan sagði að þeim skjátlaðist, það hefði orðið sprenging í stjórnarbyggingunni í miðborg Óslóar.(!)"

 


mbl.is „Þið munuð deyja í dag, marxistar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á að treysta Trausta?

me_alhiti_a_islandi_mi_a_vi_9_maelisto_var_--sigur_ur_thor"Þrátt fyrir allt þá er hitinn nú bara rétt undir meðallagi það sem af er mánuðinum," segir Trausti Jónsson, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, en meðalhiti í Reykjavík og á Akureyri, það sem af er maí, er 1,2°C undir meðallagi.

Þetta er ekki tiltökumál að mati Trausta og í því sambandi nefnir hann að ef við förum ennþá lengra aftur í tímann þá sé hægt að nefna ár þar sem þetta var viðloðandi ár eftir ár(!)

Heimsendaspámenn, með Al Gore og ORG í fararbroddi mörgæsa á Suðurpólnum, hafa farið hamförum yfir áætlaðri 0,7°C hækkun meðalhita á jörðu frá 1900.

Ef hægt er að treysta Trausta er 1,2°C lækkun meðalhita ekkert tiltökumál. Hvers vegna í ósköpunum er 0,7°C hækkun meðalhita þá ávísun á tortímingu mannkyns?


mbl.is Hiti 1,2°C undir meðaltali í maí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Satt og rétt

Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, hittir naglann beint á höfuðið þegar hann lýsir #fréttaflutningi# RÚV frá landsdómi sem ótrúlegri afdalamennsku.

Að sjálfsögðu eiga landsmenn heimtingu á því að fá að fylgjast með þessum einstæða atburði í beinni útsendingu. Sá háttur er hafður á hjá þróuðum lýðræðisþjóðum.

Þöggunarárátta RÚV er þekktari en frá þurfi að segja. Þar á bæ þurfa menn að gyrða sig í brók og skríða út úr torfkofunum.


mbl.is Styrmir: Ótrúleg afdalamennska
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bláturninn bíður

FLokksmafían er nú fyrir rétti. Ekki bara Geir H. Haarde per se, heldur sjáLfstæðisFLokkurinn eins og hann leggur sig.

Þrátt fyrir að netsamband sé sagt lélegt í #Þjóðmenningarhúsi DO# og stranglega bannað að útvarpa og sjónvarpa beint frá réttarhöldunum(!) eru skilaboðin skýr:

Það er komið að uppgjöri við gamla Ísland, mafíuFLokkinn sem deildi og drottnaði og fjórFLokkssiðleysið.

16 ára fangelsi er lágmarksdómur. Bláturninn bíður.


mbl.is Geir gefur skýrslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bláköld lygi!

Þetta úrþvætti, sem heldur um stjórnartauma landsmála, skeytir hvorki um skömm né heiður. Hið rétta er auðvitað að megnið af meintum 200 milljarða afskriftum heimilanna eru til komnar vegna hæstaréttardóma. Þar hafa einstaklingar skorað bankamafíuna og skósveina hennar í ríkisstjórn á hólm og haft betur.

Tvíeykið JóGrímur er bert að grímulausri aðför gegn almenningi þessa lands. Það er löngu kominn tími á að svæla þetta pakk út úr stjórnarráðinu og rétta yfir því eins og ótíndum glæpamönnum.


mbl.is 200 milljarðar afskrifaðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Upplognar tölur

Holdgervingar gamla Íslands Fréttir um ótímabæra fjölgun svonefndra undirskrifta á vefsíðunni Áskorun til forseta þar sem skorað er á Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, að gefa áfram kost á sér til embættis forseta Íslands í komandi forsetakosningum eru í besta falli rangar og villandi.

Staðreyndin er sú að almenningur hefur enga tryggingu fyrir gæðum söfnunarinnar og fjöldi einstaklinga hefur þegar gefið sig fram sem vitna um að söfnunin er gjörsamlega marklaus. Þannig hafa ýmsar teiknimyndafígúrur, ofurhetjur og forsögulegar vættir skráð sig inn á vefinn án nokkurra vandkvæða. LoL

Fantasían um fimmta kjörtímabil ORG er ekki að fara að rætast.


mbl.is Tæp 15.000 skorað á forsetann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ruslatunnukönnun!

Saga af forsetafífli í útrás - skyldulesning fyrir upplýsta Íslendinga Það þarf ekki að hafa mörg orð um gildi hinnar makalausu undirskriftasöfnunar sem Móafréttir og besti vinur DO hafa sameinast um að ýta að landsmönnum.

Könnunin er einfaldlega marklaus og að engu hafandi. Tómas Hafliðason verkfræðingur færir góð og gild rök fyrir ruslatunnuklúðrinu á bloggi sínu: "Þetta er án efa verst útfærða undirskriftarsöfnun sem hefur verið gerð á undanförnum árum."(!)

Upplýsingar á heimasíðu umræddrar undirskriftasöfnunar eru því að sjálfsögðu rangar og hlægilegt að vitna í sífellu í upplognar fjöldatölur. Hins vegar eru aðstandendur söfnunarinnar að sönnu vel þekktir fyrir bellibrögð í pólitík og siðleysi í stjórnarathöfnum.


mbl.is Lýsti yfir stuðningi í nafni annars manns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt í plati

Tveir af sama sauðahúsi, ásamt mökum Undirskriftarsöfnun gömlu framsóknarráðherraelítunnar og Kvosarkynslóðarinnar er hlægilega ómarktæk og að engu hafandi. Það skal upplýst hér að bloggari skrifaði nafn Ólafs Ragnar Grímssonar og kennitölu án nokkurra vandkvæða á listann í gærkvöldi.

Eins og fram kemur í meðfylgjandi frétt er engin leið að sjá nöfn þeirra sem skrifa sig á listann, né hvernig aðstandendur hyggjast tryggja að fólk geti kannað að nafn þeirra eða kennitala sé á listanum.

Reyndar má til sanns vegar færa að skipulag þessarar makalausu undirskriftarsöfnunar endurspegli launhyggju og markleysi þeirra sem að henni standa - enda eru þetta makráðugir fyrrverandi erfðaprinsar á Alþingi og veislustjórar Hrunverja.


mbl.is Persónuvernd ekki borist kvörtun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband